Taumlaus græðgi og valdabarátta

Það er erfitt að vera náttúruverndarsinni og verndarsinni yfir höfuð í þessu þjófélagi með þetta nýja stjórnarfar yfir höfðinu sem viðgengst af taumlausri græðgi og mun sífellt ganga á "kökuna" í hvaða mynd sem er.  Hef persónulega stórar áhyggjur af komandi kynslóð.

Ólafur gerði þó sitt.


mbl.is Ólafur: Blekktur til samstarfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaðafriðunarsinnar?

Það er ekkert lát á þessum hvalaófriði hér við Íslandsstrendur.  Þetta er orðið þreytandi.  Hvalkjöt er hollasta kjötafurð í heimi og ég, sem íslendingur, vil getað borðað það eins og hvalaófriðurinn hamborgarann sinn.  Hamborgarinn þeirra hlýtur að finna jafnmikið "til" eins og hvalkjötsbitinn minn.  Líti þeir sér nær meðan þeir líta sér fjær.  Aumingja hænugreyin í saurmenguðum milljónaskemmum í hvalafriðarans landi og svo vantar okkur frekar svona "revulúsjónista" til að frelsa nokkra asna í arabalöndunum sem er þrælað til dauða.

Sveijattan


mbl.is Segja hvalkjötsútflutninginn spilla fyrir málamiðlun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

já já, klóra í bakkann...

En eru ekki meðallaun í þessum löndum allnokkuð hærri og matarskatturinn lægri en hér??
mbl.is Bensínverð lægst á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"aðgerðir" atvinnubílstjóra

Ég styð heilshugar mótmæli vörubílstjóra, almenningur hefur verið hálfsofandi yfir eigin hagsmunum og óstjórn þessa lands. Loksins þorir einhver að gera eitthvað.  Yfirvöld og lögregla eru ekki par sátt við umferðartafirnar sem þetta skapar, sem og fáeinir aðrir en það skal líta sér nær, þar sem borgin hefur verið hálfgrafin í mörg ár og sem skapað hefur langvarandi umferðarteppur, t .d. Sæbraut, Miklabraut ofl. ofl. Maður þurfti að komast frá vinnu úr miðbænum og t.d. í Kópavoginn helst fyrir kl. 16.00 eða eftir kl. 17.00 til að lenda ekki í klukkustundar umferðarteppu við hinn "nýja stokk" á móts við Öskjuhlíð.  Þá er þagað um greiða leið sjúkra-lögreglu-eða slökkvibíla. Það geta víst ekki allir notað reiðhjól svo NIÐUR MEÐ BENSÍNVERÐIÐ!
mbl.is Umferð komin af stað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Um bloggið

Harpa Karlsdóttir

Höfundur

Harpa Karlsdóttir
Harpa Karlsdóttir
Áhugi á almenningi og umhverfi.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband